Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Veðrið á Íslandi er óútreiknanlegt allt árið um kring svo fólk þarf að vera viðbúið snöggum breytingum, jafnvel oft á dag. Aðal málið er pakka nokkrum ólíkum lögum af fötum. Hér er listi af hlutum sem þú ættir að taka með þér, óháð því á hvaða tíma árs þú ert á ferðinni. Mikilvægt er að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum.

Veðurfar

Hiti 6°C / 42.8F

Meðaltal - efri mörk 8°C / 46.4F

Meðaltal - neðri mörk 3°C / 37.4F

Úrkoma 93mm/dag

Snjódagar 7

Tímar af dagsbirtu 13

Við hverju er að búast?

Haustlitirnir skarta sínu fegursta í september og tilvalið að bregða sér í haustlitaferð. Hafið í huga að veður getur breyst hratt og mikilvægt er að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum og taka stöðuna reglulega. September getur bæði verið vinda- og rigningasamur svo mundu eftir hlífðarfötum. Jafndægur að hausti eru 22.-23. september.

Hvað þarf að taka með?

  • Hlýjan og einangrandi jakka eða úlpu
  • Hlý lög af fötum (ullarpeysu, dún-/primaloftjakka, hlýir sokkar o.þ.h.)
  • Létt lög af fötum (síðermaboli, létta jakka o.þ.h.)
  • Brodda eða skó með stömum sóla (jafnvel þótt þú sért bara í bæjarferð)
  • Flíspeysa/létt ullarpeysa
  • Regn-/vindheldur jakki og buxur
  • Sólgleraugu
  • Vettlingar
  • Trefill
  • Húfa
  • Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Hlýir sokkar eða göngusokkar (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Sólavörn
  • Sundföt
  • Fljótþornandi handklæði (sérstaklega ef farið er í náttúrulaugar og uppsprettur – hægt er að leigja handklæði í flestum sundlaugum)

Upplifðu aðra mánuði