Veðrið á Íslandi er óútreiknanlegt allt árið um kring svo fólk þarf að vera viðbúið snöggum breytingum, jafnvel oft á dag. Aðal málið er pakka nokkrum ólíkum lögum af fötum. Hér er listi af hlutum sem þú ættir að taka með þér, óháð því á hvaða tíma árs þú ert á ferðinni. Mikilvægt er að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum.
Við hverju er að búast?
Í febrúar lengjast dagarnir hratt. Ökumenn þurfa að hafa í huga að þegar sólin er lágt á lofti geta skapast krefjandi aðstæður við akstur. Yfir háveturinn má búast við öllum veðrum og að skjótt skipast veður í lofti. Hlýr og skjólgóður vetrarklæðnaður er nauðsynlegur. Hreindýr er aðeins að finna á Austurlandi og ættu ökumenn að vera vakandi fyrir þeim, sérstaklega á fjallvegum. Norðurljós sjást á himni.
Hvað þarf að taka með?
- Hlýjan og einangrandi jakka eða úlpu
- Hlý lög af fötum (ullarpeysu, dún-/primaloftjakka, hlýir sokkar o.þ.h.)
- Brodda eða skó með stömum sóla (jafnvel þótt þú sért bara í bæjarferð)
- Flíspeysa/létt ullarpeysa
- Regn-/vindheldur jakki og buxur
- Sólgleraugu
- Vettlingar
- Trefill
- Húfa
- Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
- Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
- Hlýir sokkar eða göngusokkar (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
- Sundföt
- Fljótþornandi handklæði (sérstaklega ef farið er í náttúrulaugar og uppsprettur – hægt er að leigja handklæði í flestum sundlaugum)