Fara í efni

    Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

    Veðrið á Íslandi er óútreiknanlegt allt árið um kring svo fólk þarf að vera viðbúið snöggum breytingum, jafnvel oft á dag. Aðal málið er pakka nokkrum ólíkum lögum af fötum. Hér er listi af hlutum sem þú ættir að taka með þér, óháð því á hvaða tíma árs þú ert á ferðinni. Mikilvægt er að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum.

    Veðurfar

    Hiti -2°C / 28.4F

    Meðaltal - efri mörk 1°C / 33.8F

    Meðaltal - neðri mörk -4°C / 24.8F

    Úrkoma 81mm/dag

    Snjódagar 15

    Tímar af dagsbirtu 11

    Við hverju er að búast?

    Í mars þurfa ökumenn að hafa í huga að þegar sólin er lágt á lofti geta skapast krefjandi aðstæður við akstur. Þótt tekið sé að vora enn búast við öllum veðrum og skjótt skipast veður í lofti. Hlýr og skjólgóður vetrarklæðnaður er nauðsynlegur. Hreindýr er aðeins að finna á Austurlandi og ættu ökumenn að vera vakandi fyrir þeim, sérstaklega á fjallvegum. Von bráðar draga norðurljósin sig í hlé fyrir sumarið. Sumarjafndægur eru 20. mars.

    Hvað þarf að taka með?

    • Hlýjan og einangrandi jakka eða úlpu
    • Hlý lög af fötum (ullarpeysu, dún-/primaloftjakka, hlýir sokkar o.þ.h.)
    • Brodda eða skó með stömum sóla (jafnvel þótt þú sért bara í bæjarferð)
    • Flíspeysa/létt ullarpeysa
    • Regn-/vindheldur jakki og buxur
    • Sólgleraugu
    • Vettlingar
    • Trefill
    • Húfa
    • Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
    • Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
    • Hlýir sokkar eða göngusokkar (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
    • Sundföt
    • Fljótþornandi handklæði (sérstaklega ef farið er í náttúrulaugar og uppsprettur – hægt er að leigja handklæði í flestum sundlaugum)

     

     

    Upplifðu aðra mánuði

    Viðburðir