Laugardaginn 22. febrúar í Végarði í Fljótsdal kl. 15 - 17:30
SKRÁNING OG UPPLÝSINGAR :: www.heidrunmaria.com/sukkuladi
Vertu velkomin/nn í einlæga og hjartaopnandi súkkulaði seremoníu þar sem þú færð tíma og rými til að staldra við og dvelja dýpra í hjartanu þínu. Í gegnum næma leiðslu verður þú leidd/ur í innri hlustun og ró með aðstoð cacao plöntunnar, einföldum öndunaræfingum, leiddri hugleiðslu og tónheilun.
Í hröða nútímalegu samfélagi eigum við til að týnum okkur í áreiti, samanburði og skoðunum annarra. Hér í þessum stundum einblínum við á hjartatenginguna okkar, innri hlustun og samstillingu við eigin náttúrunnar takt.
Það að opna hjartað okkar opnar fyrir dýpri nánd við lífið og eykur þannig vellíðan, frið og gleði í hversdagsleikan.
_____________________________________
HVAÐ ER SÚKKULAÐI SEREMÓNÍA?
Við hefjum stundina að drekka saman Ceremonial Grade Cacao frá regnskógi Guatemala.
CEREMONIAL CACAO
Er kallaður drykkur guðanna í Mayan ættbálkum suður Ameríku. Þessi drykkur er jafnframt stútfullur af andoxunarefnum, steinefnum, vítamínum og er talinn magnesíum ríkasta planta jarðarinnar. Það hefur bæði slakandi áhrif á hug og hjarta og hjálpar þannig að fara í hugleiðsluástand til að fara dýpra inná við í hvíld, mýkt, kyrrð og hlustun.
TÓNHEILUN OG SLÖKUN
Í tónheilun er notast við tíðni, hljóma og tóna til að færa okkur í dýpri slökun, jafna orkuflæði líkamans og bæta líkamlega og tilfinningalega vellíðan. Tónheilun getur losað um djúpa streytu og kvíða, róað og nært taugakerfið, bætt svefn, losað um verki, aukið vellíðan og hjálpað líkamanum að heila sig.
Hér ferðumst við djúpt í vitundina og leyfum tónunum að leiða okkur í innra ferðalag.
_____________________________________
PRAKTÍSK ATRIÐI
- Laugardaginn 22. febrúar í Végarði í Fljótsdalshrepp
- Byrjum stundvíslega kl 15 og ljúkum athöfn um kl. 17:30
- Verð 4.000 kr.
- Byrjum stundvíslega kl 15 og ljúkum athöfn um kl. 17:30
- Verð 4.000 kr.
SKRÁNING OG UPPLÝSINGAR :: www.heidrunmaria.com/sukkuladi
Hvað þarftu meðferðis eða að vita fyrir stundina:
Mælst er með að fasta 1,5 - 2 klst fyrir stundina svo þú sért tiltölulega létt/ur í maga í upphafi athafnar.
Sleppa öllum mjólkurafurðum og koffíni fyrir stundina.
Vertu í þægilegum og mjúkum fatnaði.
Hafðu meðferðis vatnsflösku, púða til að sitja á, teppi og jafnvel gæru.
Ef þú ert með hjartasjúkdóm, á þunglyndis- eða kvíðalyfjum er nauðsynlegt að láta Heiðrúnu vita fyrirfram.
_____________________________________
Það sem þú átt kost á að upplifa:
- Samhæfingu á milli hugans og hjartans
- Endurræsingu á lífskrafti
- Dýpri tengingu við sjálfan þig og æðri mátt
- Tilfinningalosun
- Sterkara innsæi og dýpri innsýn
- Dýpri skynjun og tenging við líkamann
- Djúpa slökun og hvíld
- Innri hamingju og frið
- Dýpri gleði, fegurð og friður í hversdagsleikanum
- Endurræsingu á lífskrafti
- Dýpri tengingu við sjálfan þig og æðri mátt
- Tilfinningalosun
- Sterkara innsæi og dýpri innsýn
- Dýpri skynjun og tenging við líkamann
- Djúpa slökun og hvíld
- Innri hamingju og frið
- Dýpri gleði, fegurð og friður í hversdagsleikanum
Mælst er með mæta reglulega fyrir dýpri upplifun og áhrif. Flestir finna áhrifin endast í nokkra daga eða lengur.