Í tilefni af vitundarvakningu Krafts bjóðum við í Ladies circle 19 uppá pop-up prjónaviðburð næsta laugardag (15.mars) milli kl 11 og 15 í húsnæði Bara snilld við Lagarfell 4, Fellabæ.
Prjónurum bjóðum við að koma með prjónana með sér (sokkaprjóna nr. 4.5) og spreyta sig á nýrri sokkauppskrift byggða á verkum Tótu Van Helzing. Sokkauppskriftin er hluti af vitundarvakningu Krafts þar sem duglegir prjónarar um allt land eru hvattir til að prjóna ullarsokka til styrktar Krafti.
Garn verður á staðnum í boði ÍSTEX og ICEWEAR.
Sokkarnir fara í gjafapoka sem Kraftur gefur öllum sem greinast með krabbamein á aldrinum 18-40 ára. Gjafapokann fær fólk afhentan á krabbameinsdeildum þegar það mætir í meðferð eða í fræðsluviðtal til hjúkrunarfræðings.