Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

BRAS: Víkinga - og fornleifasmiðja

18. september kl. 16:00-18:00
Minjasafn Austurlands og Bókasafn Héraðsbúa bjóða til víkingasmiðju í tengslum við BRAS og sýninguna Landnámskonan.
Á sýningunni Landnámskonan er fjallað um merka fornleifafundi á Austurlandi og til sýnis eru merkilegir gripir frá víkingatímum sem fundist hafa hér á svæðinu.
Í smiðjunni verður m.a. boðið uppá:
- Barnvæna leiðsögn um sýninguna.
- Fornleifasmiðju þar sem þátttakendur fá að bregða sér í hlutverk fornleifafræðinga og grafa eftir þykistu fornleifum.
- Víkingabúningamátun.
- Hnefatafl og fleiri leiki.
Viðburðurinn stendur frá kl. 16:00-18:00, hægt að koma og fara að vild.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin!

GPS punktar

N65° 15' 45.434" W14° 23' 47.097"