Ferðaupplýsingar
Sjóleiðis
Vikulegar siglingar með Norrænu frá Danmörku til Seyðisfjarðar, með viðkomu í Færeyjum. Athugið að áætlunin er breytileg eftir árstíma.
Ferja fer tvisvar í viku á milli Neskaupstaðar og Mjóafjarðar að vetrarlagi (2. október - 31. maí) . Mánudaga og fimmtudaga frá Mjóafirði kl. 10:00 og frá Neskaupsstað kl. 12:30.
Í bíl
Keyrðu á þínum hraða í eigin bíl, eða leigðu þér bíl. Þú kemst austur frá höfuðborgarsvæðinu á einum degi með góðum stoppum. Njóttu ferðarinnar, hvort sem þú ferð norðurfyrir eða um Suðurland, leiðirnar eru nánast jafnlangar og svo er tilvalið að loka hringnum á leiðinni heim!
Með rútu/strætó
Hvernig væri að taka Strætó austur, njóta þess að láta aðra keyra, njóta útsýnisins og bóka spennandi afþreyingu á Austurlandi á netinu?
Daglegar ferðir innan Austurlands eru með SV-Aust allt árið til: Borgarfjarðar, Seyðisfjarðar, Egilsstaða, Reyðarfjarðar, Eskifjarðar, Neskaupstaðar, Fáskrúðsfjarðar, Stöðvarfjarðar, Breiðdalsvíkur, Djúpavogs og Hafnar.
Bílaleigur á Egilsstaðaflugvelli
Þarftu að leigja bíl? Það er einfalt mál!
Bílaleiga | SíMI | tölvupóstur |
---|---|---|
Avis | +354 660 0623 | egilsstadir@avis.is |
Hertz | +354 522 4450 | egilsstadir@hertz.is |
Europcar | +354 461 6070 | holdur@holdur.is |
Budget | +354 562 6060 |
Vantar þig leigubíl?
Leigubíll kemur þér á áfangastað innan bæja og á milli ef vill!
nafn | sími | staðsetning |
---|---|---|
Jón Eiður Jónsson | +354 892 9247 | Egilsstaðir |
Ásgrímur Ásgrímsson | +354 898 8044 | Egilsstaðir |
Bjarni Hávarðsson | +354 893 3450 | Eskifjörður |
Sturlaugur Stefánsson | +354 852 2227 | Eskifjörður |
Gunnar Th. Gunnarsson | +354 844 9133 | Reyðarfjörður |