Austurland Freeride Festival
30.01.2020
Austurland Freeride Festival er ný fjallaskíða- og brettahátíð sem haldin verður í Fjarðabyggð dagana 28. febrúar til 1. mars 2020. Áhersla er lögð á að njóta náttúrunnar í austfirsku ölpunum undir leiðsögn vanra, staðkunnra fjallamanna.
Ýmis konar menningarviðburðir verða í boði á svæðinu, t.d. tónleikar, kvöldvökur og matarupplifanir.
Aðalviðburðurinn (tveggja daga, einungis á færi vanra fjallamanna):
- Skörðin tvö: Á einum degi er farið í gegnum tvö fjallaskörð sem bæði eru í um 800 metra hæð og endað í öðrum firði en byrjað var.
- Tindurinn: Farið er upp á 1.000 metra háan tind og skíðað niður.
Byrjendanámskeið á fjallaskíðum og splitboards sem fram fer í Oddskarði:
- Snjóflóðanámskeið þar sem farið er yfir helstu hættur á fjöllum og viðbrögð við þeim.
- Almenn kennsla á búnaðinn.
Síðasti dagurinn: Skíða- og brettafólk tekur skíðalyftuna í Oddskarði en gengur áfram upp fjallið á búnaði sínum í fylgd vanra leiðsögumanna áður en það rennir sér niður að snjólínu.