Fyrirtækjum og stofnunum á Austurlandi býðst sér að kostnaðarlausu að setja upp sýningarbás þar sem starfsmenn geta kynnt fyrir nemendum þau störf sem unnin eru. Þetta er EKKI hugsað sem fyrirtækjakynning heldur kynning á þeim störfum sem unnin eru, í hverju þau eru fólgin, hvaða menntunar og færni þau krefjast. Þannig munum við gefa nemendum gott tækifæri til að kynnast spennandi störfum, sem þau vissu e.t.v. ekki að væru unnin á Austurlandi, og mögulega leggja grunninn að menntun sinni í framtíðinni.
Við hvetjum atvinnurekendur að taka þátt í Starfamessunni á Austurlandi 2024, leggja sitt af mörkum að kynna fyrir ungu fólki framtíðarstörf- og tækifæri á Austurlandi.
TAKTU ÞÁTT!
Skráning er hafin og hún er einföld: Sendu tölvupóst á palli@austurbru.is og láttu fylgja með nafn fyrirtækis og símanúmer/netfang tengiliðar. Við munum svo hafa samband fljótlega!
Gestir Starfamessu Austurlands 2024 eru allir nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla ásamt fyrsta árs nemum framhaldsskólanna. Sýningin verður á skólatíma og við reiknum með um 400 nemendum frá skólum í Múlaþingi, Fjarðabyggð og Vopnafjarðarhreppi
Starfamessa fer fram í Íþróttahúsinu á Egilsstöðum 19.september frá klukkan 10-14