Fab Lab Austurland á 10 ára afmæli föstudaginn 8. nóvember. Af því tilefni viljum við bjóða upp á kaffi og afmælisköku milli kl. 15 og 17.
SÚN veitti Fab Lab Austurland styrk til kaupa á BN-20A litaprentara, sem býður upp á mjög spennandi notkunarmöguleika. SÚN ætlar að afhenda hann formlega kl. 15. Við ætlum líka að sýna nýjasta þrívíddarprentarann okkar sem getur prentað út hluti í nokkrum litum. Verið öll velkomin!
Hlökkum til að sjá ykkur.