- Afþreying og staðir
-Þjónustuleit
Hand Traffic In The Box - Skaftfell
18. apríl - 02. maíSýningin Hand Traffic In The Box mun opna í Skaftfelli – miðstöð myndlistar á Austurlandi laugardaginn 6. mars kl. 18:00.
Einu sinni á ári fá útvaldir listaskólanemar tækifæri til að baða sig í gestrisni Seyðisfjarðar og drekka af köldum spena hans.
Í ár voru það átta ólíkir listamenn, innlendir og erlendir, sem börðust við að finna lausnir á vandamálum sem eru ekki til.
Lausnirnar verða framreiddar fyrir svanga listunnendur, kaldar og beiskar, í listamiðstöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði, þann 6. mars.
Þegar öll kurl eru komin til grafar er Hand Traffic In The Box sýning sem ekki verður lýst með orðum heldur brögðuð með dauðlegum augum. Sýningin er afrakstur árlegra vinnubúða Listaháskóla Íslands, Dieter Roth Akademíunnar, Tækniminjasafnsins og Skaftfells á Seyðisfirði.
Nemendurnir hafa unnið með verkstæðum og handverksmönnum bæjarins auk þess að hafa kannað andrúm fjarðarins af fullum krafti.
Nemendurnir sem eiga verk á sýningunni eru: Claus Haxholm Jensen, Katrin Caspar, Loji Höskuldsson, Ragnhildur Jóhannsdóttir, Selma Hreggviðsdóttir, Sigríður Tulinius, Solveig Thoroddsen og Þórarinn Ingi Jónsson.
Leiðbeinendur og sýningarstjórar eru Björn Roth og Kristján Steingrímur Jónsson. Sýningin stendur til 2. maí og er opin miðvikudaga til fimmtudaga frá 13:00 – 17:00 og föstudaga til sunnudaga frá 12:00 – 22:00.
Skaftfell miðstöð myndlistar á Austurlandi | Austurvegi 42 | 710 Seyðisfirði | s. 472 1632 www.skaftfell.is





